7.12.04

Skruppum suður um helgina. Silja var að láta taka af sér gifsið. Helgin fór síðan í búðarráp og einhver jólagjafainnkaup. Bára Örk og Silja fóru í pipakökuhúsagerð til mömmu og Jóns á laugardeginum. Við Ásta létum hins vegar hunda þefa af okkur ásamt öllum hinum gömlu pönkurunum í Smáranum í Kópavoginum á Fræbblunum og Stranglers. Fræbblarnir enduðu á laginu "Í nótt" það er lag með einum stórkostlegasta og innihaldsríkasta texta. Segir nákvæmlega það sem allir hinir eru að reyna að segja undir rós í sínum lögum! Stranglers voru soldið lengi í gang. Ég held að hljóðmaðurinn hafi verið í Laugardalshöllinni að mixa í byrjun. Hann kom allavega ekki inn fyrr en eftir fyrstu 4 lögin. Þeir tóku flest af lögunum sem maður kannast við og slatta af nýjustu plötunni. Það hljómaði vel þó maður þekkti það ekki neitt. Ég var samt fúll yfir að þeir skildu ekki taka "LaFolie" eða "Næsennslísí". Svona er maður orðinn gamall og vanafastur! Ég er ekki alveg að fýla þennan nýja söngvar. Hann náði Hugh vel í gömlu lögunum en það var eins og það vantaði eitthvað power í hann. Fyrir utan það að ég vil þegar ég fer að sjá Stranglers sjá það sem þeir eru. Gamla og soldið þétta poppara/pönkara? Ekki ofurhressan, með aflitað hár og fullt af fancy tattúum söngvara sem greinilega er með árskort í ræktinni og notar það út í ystu æsar, með nýrakaða bringuna söngvara sprikla eins og hann sé Billy Idol á spítti. Það er eitthvað sem passar ekki þarna saman. En þrátt fyrir allt þetta nöldur í mér voru tónleikarnir fínir. Drullufínir eins og einhver myndi segja.

28.11.04

Bændur – bakbein landsins


Merkileg! Kominn í mitt framsóknarhéraðið, eins og pabbi var vanur að segja þegar við keyrðum þetta saman, og ekki búinn að sjá eina einustu rollu ennþá. Ætli Guðni viti af þessu? Ég hefði kannski átt að segja honum af þessu þarna í kaupfélaginu áðan? Eða ég held að þetta hafi verið hann að kaupa grillkol. Rigningarsuddi og hann að kaupa kol. Ætlaði maðurinn að fara að grilla í þessu veðri? Hvað skyldi vera á grillinu hjá honum? Lambakjöt? Nautakjöt? Fiskur? Nei varla. En merkilegt að sjá hvergi eina einustu kind og ég sem hélt að það ætti ekki að vera þverfótandi fyrir þeim á þjóðvegum landsins? Bændur, bakbein landsins, pabbi var líka vanur að segja það, hvar eru rolluskjáturnar ykkar? Varla inna girðingar einhverstaðar? Um leið og ég hugsaði þetta stökk ein upp á veginn. Ég negldi á bremsuna en allt kom fyrir ekki. Hún lenti á bílnum.




Og þar hafið þið það. Nú ætla ég í hvert sinn sem það verður lambakjötsuppskrift í Gestgjafanum þessa 6 mánuði sem ég fæ hann að muna eftir henni þessari!
Drasl! Ég var eitthvað að fikta í templatinu á þessu bloggi hérna og svaraði eins og asni einhverri spurningu með því að ýta á yes. Þá var náttúrulega spurningin hvort að maður væri með það á hreinu að þegar maður veldi nýtt template að þá hyrfu allar viðbætur og aukafítusar sem maður væri kominn. Eins og teljarinn og commentakerfið. Og ég eins og auli passaði mig ekki á að taka kópíu af html kóðanum eins og hann var. Maður á ekki að gera þetta! En... Svona er þetta. Reyni kannski að kippa þessu inn við tækifæri...þegar ég nenni...eða eitthvað. Þangað til verðið þið bara að lifa með því að geta ekkert haft um blaðrið mitt að segja.

Annars fékk ég upphringingu frá einhverjum á skrifstofu framsóknarflokksins á fimmtudaginn í skólann. Málið var að ég asnaðist til þetta að taka þátt í örsagnasamkeppni súf . Já ég veit! Það voru einhverjar kvaðir á um að einhver orð eða ákveðin nöfn þyrftu að koma fram. Mig langaði bara svo í fyrstu verðlaunin! En ég fékk sem sagt fjórðu verðlaun! Sem hægt er að sjá meira um hér

Það var semsagt verið að hringja og tékka á því hvaða blað frá Fróða mér hugnaðist að fá næstu 6 mánuði. Muna að segja upp eftir 6 mánuði ef ég ætla ekki að halda áfram að fá það. Óþolandi þegar maður fær svona prufuáskriftir og svo bara heldur hún áfram og maður fær rukkun.

Ég hafði engan áhuga á Mannlífi eða Nýju lífi. Ekki Bleiku og Bláu og ekki séð og heyrt. Þannig að kynlífið á ekki eftir að batna hjá manni og maður á ekki eftir að vera inni í nýjasta slúðrinu. En það er heldur ekki neitt nýtt! :) En matargerðin á eftir að taka stakkaskiptum og verða tilraunakenndari næstu 6 mánuðuði vegna þess að það var það blað sem ég valdi. Einhverra hluta vegna las hann, þessi blessaði framsóknarmaður upp Hús og hýbíli. Hefði sennilega tekið það. En...

Ætla að henda sögunni inn hérna líka. Þannig að ef þið viljið kommenta á hana verðið þið bara að senda mér póst á gmelsted@mi.is

18.11.04

Jæja er þetta ekki orðin ágæt pása. Búinn að vera eitthvað latur við að setja inn hérna. En er að hugsa um að vera duglegri við það núna. Það er nefnilega svo fallegt veður! Ég ætla ekki einu sinni að reyna að segja hvað hefur drifið á daga mína síðan síðast. Nema mér finnst ennþá að tyrkneska lagið sé best og er hundfúll yfir því að þeir hafi tapað!

Fyrir þá sem hafa áhuga rakst ég skemmtilega síðu þar sem þú getur stofnað þjóð og "leikið" þér með hana að vild. Skapað útópíu samfélag þar sem allir lifa í sátt og samlyndi (sic) eða kúgað hana að vild. Þegar þjóð er stofnuð þarf að velja forsendur sem hafa áhrif á hvernig þjóðin hefur það. Síðan þarfa að takast daglega á við ákvarðanir sem hafa áhrif á þjóðina. Kíkið hingað ef þið hafið áhuga.

Kennarinn minn kom strax auga á að þetta væri hægt að nýta í kennslu. Unglingarnir "þurftu" því að stofna sína eigin þjóð og kljást við þetta fram að áramótum í samfélagsfræði/þjóðfélagsfræði.

Hérna getið þið kíkt á þjóðina mína og hvernig mér gengur að "hugsa" um hana.

Yfir og út í bili.

Eftirskrift: Hvernig væri að fara gera eitthvað í útlitinu...set það í nefnd.

15.5.04

Ég ætla nú ekki að gefa mig út fyrir að vera Júróvissíón snilling eins og hann Arnar Jónsson. Hvað þá heldur að ég geti pikkað þau lög út sem ganga vel í fólk. Ég hélt að Finnarnir og Danirnir myndu til dæmis komast áfram. Ég og Silja sem erum ein í kotinu núna ætlum að sjálfsögðu að fylgjast með. Ætlum að fá okkur kjúklíng og franskar yfir sjónvarpinu. Hneykslast yfir lélegu lögunum. Fyllast þjóðarstolti þegar Íslendingar eru á sviðinu. Og halda með "okkar" lögum. Ég ætla að halda með Tyrkjum í ár. Fyrst að Austurríkismenn sendu ekki snillinginn Alf Poiet aftur í Júró! Ég er ekki alveg viss með hverjum Silja heldur með held samt að það sé Russlana hin þjóðlega og alþjóðlega. Það er líka mjög flott. Einhvernvegin hef ég það á tilfinningunni að 16 sætið verði okkar...enn og aftur. Ætli Belgarnir taki þetta bara ekki. Það er svo lítið búið að tala um þá! :)

26.4.04

Sumarið er komið! Búið að vera fínasta veður í allan dag og það verður svona í allt sumar! Og hana nú! Bára Örk fór með sumardagsgjöfina, sem kom með rútunni á föstudag að sunnan, töffarasólgleraugun sín í leikskólann í morgun. Silja hefur verið að hlusta á sína disk með KK og ég mína nýjasta disk Daniel Lanois . Daníel þessi er upptökustjóri og góðvinur U2 og ekki spillir fyrir að þeir kumpánar dúkka venjulega upp á diskum Daníels. Bono til dæmis núna. Sérdeilis góður diskur þó hann sé ekki "Lanois-legur".

Silja ákvað að vera menningarviti fjölskyldunnar í kvöld. Hún fór á sýningu Leikfélags Hólmavíkur hérna á Drangsnesi í kvöld á leikritinu Frænka Charley's . Verkefni á öðrum vígstöðvum hindruðu það að ég kæmist líka. Hefði verið gaman að kíkja. En kemur dagur eftir þennan dag. Kvöld eftir þetta kvöld og leikrit eftir þetta leikrit. Eða ég vona það allavega!

22.4.04

Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn!

Mamma og Jón voru í heimsókn. Þau komi seint í gærkvöldi eftir vinnu og með þeim 2/3 af fótboltaliði Bjargar systur og Heimis, þeir Orri og Arnar Már. Þau voru hér í dag og héldu síðan yfir á bæinn Barma rétt fyrir utan Reykhóla, sem er lítill sætur torfbær sem þau eiga en er alveg heill djöfuldómur að tyrfa eins og ég og nokkrir aðrir fengu að kynnast síðasta sumar! Þau komu færandi hendi með sumargjafir handa öllu liðinu og hamborgarahrygg. Sem þau höfðu ekki komist yfir að borða á páskunum! Þannig að við slógum bara upp veislu í tilefni sumars hér í hádeginu og buðum tengdó í hádegismat. Síðan var haldið var haldið, eftir kaffisopa, hrísköku og spjall (sem sagt seinnipartinn! :) til Auju leikskólakennara og Jóns á Bæ I og kíkt á nokkur lömb sem mórauður lambhrútur sem gleymdist úti í eyju með fénu þeirra á sök á. Sú för vakti mikla lukku og mamma og Jón fengu síðan kynnisferð um skólann á meðan krakkarnir fóru í fótbolta á ganginum (í skólanum)...hmmmmm! Síðan héldu þau yfir á Barma. En ætli maður sé ekki tilbúinn að takast á við sumarið...svona fyrst það er að koma helgi! :)

12.4.04

Páskafríið er eiginlega farið í burtu og allt í leti og ómennsku! Ja, næstum því, en það er búið að vera gott að geta líka leift sér að dandalast og ekki gera neitt...þó maður þyrfti að vera að gera eitthvað! Það kemur niður á manni seinna. Á morgun á ég til dæmis að vera búinn að velja grein fyrir samnemendur í leshóp í upplýsingatækni. Greinar eftir C.J. Bonk aðalfyrirlesari á Ut2004 eru meðal þess sem við getum valið. Hann hefur þekkst boð um að taka þátt í spjalli við okkur um okkar meiningar um greinar sínar. Áhugavert...ég vona bara að einhver af þeim sem eiga að velja greinar velji hans grein! :)

Fór á föstudaginn langa með Ástu í Langholtskirkju og hlýddum á Sálumessuna(Requiem) eftir Mozart. Kór Langholtskirkju var frábær! Kom mér næstum á óvart, ef hægt er að segja það um þann góða kór. Kammersveitin hefði mátt vera betri, ég heyrði nokkrum sinnum pínlega feila hjá þeim. Og einsöngvararnir góðir (nema einn). En þetta voru smáatriði og í heildina voru þetta frábærir tónleikar og mjög í anda dagsins. Frábær byrjun á páskahelginni. Laugadagurinn leið í meiri leti og ómennsku. Við Bára skruppum í sund og svona.

Páskadagur. Bára vaknaði fyrir allar aldir og náði í Seríós, Kornfleks og mjólk á morgunverðarborðið og súkkulaðikanínuna frá afa Eyjólfi og og Heidi ömmu í Austurríki. Hún vissi nefnilega að hún ætti að leita að páskaegginu. Ég veit hvar það er, tilkynnti hún, í ísskáp. Þar sem það reyndar var en páskaeggið þetta íslenska og með dýra namminu sem keypt hafði verið handa henni hafði verði falið í dúkkuvagninum hennar. Áður en hún var byrjuð að leita þá fann hún það "óvart"! Frábær svipur á henni þegar hún dró eggið upp úr vagninum þar sem dúkkurnar Rósa eða Bjössi eru vanar að vera! Ennþá betri og nautnafyllri svipur þegar hún hámaði súkkulaðið í sig.

Ásta fékk líka páskaegg en þurfti að hafa ögn meira fyrir því að finna sitt. Vegna þess að elskulegur eiginmaður hennar og undirritaður hafði búið til níu vísbendingar í ferskeytluformi og ratleik fyrir hana sem sendi hana um allt hún og út fyrir það að leita að páskaegginu sínu! Hún fann það fyrir rest og það eina sem hún sagði um leið og hún plokkaði málsháttinn út og sendi elskulegum eiginmanni sínum augnaráð og glotti var...þú getur farið að hlakka til afmælisins þíns! Þannig að ef þið sjáið lítinn sköllóttan mann með hökutopp og gleraugu vera á hlaupum og hugsanlega þurfa að gera sig að fífli annað hvort norður á ströndum eða í miðbæ Reykjavíkur þann 25. júní næstkomandi. Þá vitið þið að það er undirritaður að taka út borgun fyrir eitt lítið "djók" í sambandi við lítið, sætt páskaegg númer 3 frá Nóa Síríus!

Silja fór til pabba síns yfir páskana, hjólaði með sitt hafurtask til hans og eitt páskaegg frá okkur. Kanínan hennar frá Austurríki varð eftir, heyrðum í henni og hún fékk 3 páskaegg. það þýðir að það verður mikið súkkulaðiát hjá okkur í vikunni!

Jæja, yfir og út. Ég verð að fara að klára restina af páskaegginu eða restina af lærinu frá í gær! Eða restina af Sacher-tertunni sem við Bára bökuðum á Laugardaginn! Fullt af afgöngum! Æ, æ, æ aumingja við! By the way...sacherinn er bestur svona 2-3 dögum eftir að hann er bakaður með fullt af rjóma og kaffi. Ég er farinn!...Gleðilega páska!